hhæææ aftur sætu!
Smá fróðleikssykurmoli 
Barcelona, höfuðborg Kataloniu, er sannarlega borg sem vert er
að heimsækja. Hún stendur við sjóinn enda er hún ein mesta
hafnarborg við Miðjarðarhafið, einnig ein sú fegursta því borgin er
umkringd tignarlegum hæðum og fjöllum í fjarska. 
Frá sjónamiði skipulags er hún hreint frábær því þessi eldgamla
borg var í stórum dráttum skipulögð á 18.öld sem er algert undur
því þá fóru menn um héruð á hrossum en borgin státar af þvílíkum
breiðstrætum að undrum sætir. Árið 1714 réðust Frakkar inn í
borgina og lögðu hana nánast í rúst, eftir stendur þó gamla
gotneska hverfið sem liggur norðan við Römbluna. Þar er
skemmtilegur minnisvarði um gömlu borgina, þröngar sjarmerandi
götur og torg með miklu mannlífi og þjónustu utandyra sem og innan,
að öðru leiti er borgin nokkuð reglustrikuð með fallegum breiðgötum
þar sem umferðin gengur greiðlega og mannfólkið röltir með á
breiðum gangstéttum.
Samgöngur eru fínar, auðvelt að rata og ganga um enda sér maður
þá mest og upplifir. Borgin var tekin í gegn áður en
Ólympiuleikarnir voru haldnir þar fyrir áratug eða svo og unnið var
stórvirki í þrifnaði og endurbyggingum. Strandlengjan inn í
borginni var áður þreytulegt hafnarsvæði er nú orðin að stórum
hluta skemmtileg strönd með stéttum og byggingum í bland og mjög
aðgengileg fyrir fólk hvort sem er að ganga, hjóla, njóta
útsýnisins eða tylla sér á ströndina og slaka á.
Verk arkitektsins fræga, Gaudi, má sjá víða í borginni en
stórkostlegast er auðvitað kirkjan La Sagrada Familia, þó hún sé
ennþá hálfbyggð. Katalóniumenn eru stoltir en gestrisnir og
skemmtilegir við ferðamenn, allt annað andrúmsloft er í borginni
heldur en almennt á ferðamannastöðum á Spáni.
Barcelona hefur verið mjög vinsæl undanfarin áratug og ungt fólk
streymir þangað til náms og starfa og maður sér hvað mikið er af
ungu fólki í rekstri og vinnu í verslunum, verkstæðum og
veitingahúsum og finnur þennan eldmóð og áhuga á að selja og þjóna,
ekki á uppáþrengjandi hátt heldur frekar af áhuga. Ferðamanni líður
vel í Barcelona og upplifir sig frekar öruggan þrátt fyrir einstaka
vasaþjófa í miðborginni, maður skal alltaf gæta að því að bera
ekkert verðmætt á sér og alls ekki að hafa það aðgengilegt fyrir
aðra. Hangandi hliðartöskur eru t.d. ekki sniðugar í
stórborgum.
Þarna eins og annarsstaðar er nauðsynlegt að borða mat
innfæddra og hægt er að mæla með Tapas sem eru allskonar smáréttir
og geta myndað heila máltíð enda til margar tegundir. Saltfiskurinn
"okkar" er líka með því flottara sem borið er á borð þar í landi,
einnig í allskonar útgáfum, hráskinka, fiskur, grænmeti og ávextir
allt saman afar girnilegur matur í Kataloniu. Borgin státar af
fallegum almenningsgörðum, söfnum, torgum og byggingum, allsstaðar
er nóg að sjá og skoða. Ekki má gleyma helgidómi knattspyrnunnar
Camp Nou, sem er völlur Barcelona liðsins sem ku vera með þeim
betri í heimi og nú er glókollurinn okkar farinn að spila með þeim
og á eflaust eftir að standa uppúr í hópi dökkhærðra leikmanna,
okkar maður! Þeir sem vilja kíkja í búðir þá er frábært hverfi
norðan við Römluna og liggur niður í gotneska hverfið, fullt af
fallegum búðum og ekki síst skóbúðum! El Corte Inglés vöruhúsið er
svo við Plaça de Catalunya og víða. Fyrir þá sem vilja slappa af
við sjóinn eru þorpin ákjósanleg til þess. Stutt er að fara í
norðurátt til Costa Brava, þar sem má finna Tossa, Lljoret de Mar,
Callela og fleiri staði, sem landinn kannast við og í suðurátt er
áhugaverður bær Sitges, gamall bær með fallegar strendur og litríkt
mannlíf.
Þar rétt sunnar er svo snotur bær, Villanova i La Geltru, en
þangað sækja mest innfæddir ferðamenn og er hann kjörinn fyrir þá
sem vilja búa í rólegu þorpi en aðeins nokkrar mínútur tekur að aka
til Sitges. Lestar milli staða eru fínar, loftkældar og mjög ódýrar
svo að ekki er einu sinni nauðsynlegt að taka bíl þó það sé kannski
þægilegra fyrir fjölskyldu. Flugið til Barcelona tekur um 4 klst.
og völlurinn El Prat er 11 km suður af borginni. Þaðan er um 15
mín. akstur með leigubíl inn í borgina en ca 30 mín. til
Sitges.
www.icelandair.is/heim/afangastadir/flug-til-barcelona/
www.frommers.com,
www.barcelona.com,
www.wcities.com,
Sakna ykkar :* Helenus